Fyrri úthlutun 2017 - myndlistarsjóður

27.03.2017
Brynhildur Þorgeirsdóttir, Fjall, 2013 í Alingsås, Svíþjóð. Myndlistarsjóður 2017.

Myndlistarráð úthlutar 18 millj. kr. í styrki til 50 verkefna í fyrri úthlutun sjóðsins á þessu ári. Sjóðnum bárust 121 umsókn og sótt var um alls 101,2 millj. kr.

Stóru verkefnastyrkirnir að þessu sinni eru átján talsins og eru þeim veittar samtals 10.610 þús. kr. en sá flokkur er stærstur líkt og í fyrri úthlutunum. Af þessum verkefnum eru ellefu einkasýningar hér á landi og erlendis og fimm samsýningar. Að auki hljóta tólf myndlistarmenn styrki í flokki minni sýningarverkefna að heildarupphæð 2.490 þús.kr., þrettán styrkir að heildarupphæð 3.400 þús. kr. fara til útgáfu- og rannsókna og 1.500 þús. kr er veitt til undirbúnings verkefna og annarra styrkja.

Stærstu styrkina að upphæð 1.000.000 kr hvor, hljóta Brynhildur Þorgeirsdóttir og Steinunn Þórarinsdóttir.

Hlutverk Myndlistarsjóðs er að efla íslenska myndlist með fjárhagslegum stuðningi og stuðla þannig að framgangi listsköpunar, kynningu og aukinni þekkingu á íslenskri myndlist. Myndlistarsjóður heyrir undir myndlistarráð og starfar samkvæmt myndlistarlögum og eftir reglum sem mennta- og menningarmálaráðherra setur. Sérskipaðar matsnefndir meta umsóknir og gera tillögur um úthlutanir.

Listi yfir styrkþega er aðgengilegur hér.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur