Gregory Sholette

Annar gestur ársins 2022 í fyrirlestraröðinni Umræðuþræðir er Dr. Gregory Sholette, lista- og fræðimaður, aktivisti, og sýningarstjóri.

Talk Series Gregory Sholette

Erindi Dr. Gregory Sholette byggir útgáfu sem er væntanleg á árinu, The Art of Activism and the Activism of Art (New Directions in Contemporary Art).

Gregory Sholette er lista- og fræðimaður, aktífisti, og kennari sem býr og starfar í New York. Hann hlaut doktorsgráðu frá University of Amsterdam árið 2017 og lauk námi við Whitney Independent Study Program (1996); UC San Diego Visual Art Program (MFA: 1995); og The Cooper Union (BFA: 1979). Hann hefur gefið út fjölda fræðirita á borð við: Delirium and Resistance: Activist Art and the Crisis of Capitalism (2017); Dark Matter: Art and Politics in the Age of Enterprise Culture (2011); Art As Social Action (ásamt Chloë Bass: 2018), og The Art of Activism and the Activism of Art (2022). Dr. Sholette stýrir nýrri námsleið við Hugvísindadeild CUNY háskólann í New York (Social Practice - SPCUNY) sem tengir ýmsar greinar og leggur áherslu á félagslegt réttlæti og listir. Hann kemur einnig að kennslu við myndlist og hönnun í almenningsrými við Harvard University, Graduate School of Design.

Heimsóknin er í samstarfi við Bandaríska sendiráðið á Íslandi.

Gregory Sholette, 31. mars 2021.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur