
- This event has passed.
Arngunnur Ýr: Eyrarrósin
3 June–25 June

Arngunnur Ýr sýnir ný verk unnin á árinu 2023, þar sem hún vinnur meðal annars með íslensku Eyrarrósina í framandi umhverfi
Arngunnur Ýr hefur um árabil haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hérlendis og víða erlendis. Hún er með BFA gráðu í málaralist frá San Francisco Art Institute, MFA frá Mills College, CA, og lærði einnig við Myndlista-og handíðaskóla Íslands og MFA nám við Gerrit Rietveldt Academie í Amsterdam. Verk Arngunnar má finna í safneign á flestum listasöfnum landsins, ásamt virtum listasöfnum erlendis.
Sýningin stendur frá 3-25 júní.
Portfolio gallerí er opið frá fim til sun frá 14-18