
- This event has passed.
A! Gjörningahátíð 6-9. okt á Akureyri
6 október, 2022–9 október, 2022

A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri dagana 6.-9. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega, nú í áttunda sinn og er eina hátíðin á Íslandi sem einbeitir sér einungis að gjörningalist. Ókeypis er inn á alla viðburði.
Alls taka 22 alþjóðlegir listamenn þátt í hátíðinni og koma frá Króatíu, Rússlandi, Bandaríkjunum, Póllandi og Íslandi. Dómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni: myndlist, sviðslist, tónlist og ritlist. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Hlöðunni í Litla-Garði, Deiglunni, Kaktus, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi.
Þátttakendur eru: Anna Kolfinna Kuran, Áki Sebastían Frostason, Dýrfinna Benita Basalan, Einkasafnið, Kaktus, Katrin Hahner, Olya Kroyter, Rashelle Reynevald, Rösk, Tricycle Trauma, Vídeólistahátíðin Heim og Örn Alexander Ámundason.
Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Vídeólistahátíðarinnar Heim, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.
Details
- Start:
- 6 október, 2022
- End:
- 9 október, 2022
- Event Tags:
- A! Gjörningahátíð, A! Performance Festival, Áki Sebastían Frostason, Akureyri Art Museum, Anna Kolfinna Kuran, Dýrfinna Benita Basalan, Dýrfinna Benita Basalan, Einkasafnið, Kaktus, Katrin Hahner, Listasafnið á Akureyri, Olya Kroyter, Örn Alexander Ámundason, Rashelle Reynevald, Rösk, Tricycle Trauma, Vídeólistahátíðin Heim
- Website:
- http://www.listak.is/is/syningar/naestu-syningar/a-gjorningahatid-2022
Venue
- Akureyri Art Museum
-
Kaupvangsstræti 8-12
Akureyri, 600 Iceland + Google Map - View Venue Website