
- This event has passed.
Eruð þið ánægð ef þið megið spyrja um eitthvað?
4 júní, 2022–4 september, 2022

Tengslamyndun milli austurs og norðurs.
Á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar var framúrstefnulistamönnum frá austantjaldsríkjunum mikið kappsmál að tengjast hinum vestræna listheimi.
Á sama tíma var vettvangur íslenskrar samtíðarlistar að opnast upp, m.a. fyrir stefnum á borð við flúxus og póst-list. Það kom til vegna ört stækkandi tengslanets listamanna og gallería á borð við SÚM og listagalleríð að Suðurgötu 7. Þessi tvíhliða tilraun að auknum tengslum leiddi svo til fjörlegra samskipta og nokkurra sýninga ungverskra listamanna hér á landi.
Við munum varpa ljósi á vinnubrögð listamannanna við þessa tengslamyndun og sýningagerð á Íslandi, á tíma þar sem strangar hömlur voru til staðar á ferða- og tjáningarfrelsi í Austur-Evrópu.
Samvinna íslenskra og unverskra listamanna varð uppspretta spaugilegra viðburða sem vöktu fólk til umhugsunar á sama tíma og þeir báru tíðum vott um sjálfshæðni.
Sumarsýning Listasafns Árnesinga 2022 verður endurflutningur þessara viðburða ásamt nýrri verkum eftir sömu listamenn sem tóku þátt í þessu samstarfi á sínum tíma og blésu með því lífi í íslenska samtímalist á áttunda áratug síðustu aldar.
Listamenn:
Eggert Pétursson
Endre Tot
Gábor Attalai
Géza Perneczky
Ingólfur Arnarsson
Kristján Guðmundsson
Kees Visser
Rúrí
Sigurður Guðmundsson
Sýningarstjóri: Zsóka Leposa
Aðstoðarsýningarstjóri: László Százados
Details
- Start:
- 4 júní, 2022
- End:
- 4 september, 2022
- Event Tags:
- Eggert Pétursson, Endre Tot, Gábor Attalai, Géza Perneczky, Kees Visser, Kristján Guðmundsson, listasafn Árnesinga, Rúrí, Sigurður Guðmundsson, Zsóka Leposa, Zsóka Leposa
- Website:
- https://listasafnarnesinga.is/hveragerdi/syningar/erud-thid-anaegd-ef-thid-faid-ad-spyrja-ad-einhverju/
Venue
- Listasafn Árnesinga
-
Austurmörk 21
Hveragerði, 810 Iceland + Google Map - View Venue Website