
- This event has passed.
Berglind Birgisdóttir: Hvað á barnið að heita?
8 janúar, 2022–9 apríl, 2022

Í sal Safnahússins stendur nú yfir sýning Berglindar Birgisdóttur á nafna- og skírnarkjólum unnum upp úr gömlum textíl, svo sem gömlum kaffidúkum, sængurverum og gardínum. Kjólarnir eru settir í áhugavert samhengi við íslensk mannanöfn, fyrr og nú.
Skírnar- og nafnakjólarnir eru saumaðir úr gömlum textíl sem á sér sögu. Gömul sængurver, dúkar, munnþurrkur, milliverk og gardínur eru meðal þess sem nýtt er í kjólasauminn.
buy levaquin online herbalshifa.co.uk/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/levaquin.html no prescription
Grunnsniðið er einfalt en útlit kjólanna ræðst af efnisvalinu, hvort sett er pífa neðan á kjól, blúnda eða milliverk. Galdurinn felst í næmu auga fyrir því að nýta gamlan og slitinn textíl, jafnvel götóttan og blettóttan, og færa þannig gamla sögu í nýjan búning. Engir tveir kjólar eru eins heldur hver þeirra einstakur.
Berglind Birgisdóttir er menntaður klæðskeri og textílkennari. Hún hefur á síðustu árum unnið skírnar- og nafnakjóla úr endurunnum textíl.
buy synthroid online herbalshifa.co.uk/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/synthroid.html no prescription
Í kandídatsverkefni sínu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2009 vann hún verkefni um óhefðbundinn efnivið í textílkennslu. Samhliða því hlaut gömul hugmynd um endurnýtingu framhaldslíf og hún hannaði, sneið og saumaði fyrsta skírnarkjólinn úr gömlum gardínum sem átti að henda.
Sýningarstjóri: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir
Details
- Start:
- 8 janúar, 2022
- End:
- 9 apríl, 2022
- Event Tags:
- Berglind Birgisdóttir, Listasafn Ísafjarðar
- Website:
- https://www.safnis.is/is/ws-news/hvad-a-barnid-ad-heita/
Venue
- Ísafjörður Art Museum
-
Safnahúsið Eyrartúni
Ísafjörður, 400 Iceland + Google Map - View Venue Website