
- This event has passed.
Bonís listasýning
10 september, 2021–8 október, 2021

Föstudaginn 10. september kl. 16-18 verður opnun Bonís listasýningar í Listasal Mosfellsbæjar.
Bonís er sykursætur, litskrúðugur og ævintýralegur heimur. Þar búa litlar verur sem klæðast nammi- og ávaxtaflíkum og leika sér meðal sætinda.
Bonís er hugarfóstur grafíska hönnuðarins Sigurðar Ó.L. Bragasonar og unninn í samstarfi við konu hans Nicole og börn þeirra tvö.
Síðasti dagur til að heimsækja Bonís-heiminn í Listasal Mosfellsbæjar er 8. október.
Listasalurinn er inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Opið er kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Gott hjólastólaaðgengi er að salnum.
Details
- Start:
- 10 september, 2021
- End:
- 8 október, 2021
- Event Tags:
- Listasalur Mosfellsbæjar, Sigurður Ó.L. Bragason
- Website:
- https://www.facebook.com/events/564269148338486/?ref=newsfeed
Venue
- Listasalur Mosfellsbæjar
-
Þverholt 2
Mosfellsbær, 270 Iceland + Google Map - View Venue Website