
- This event has passed.
Brot af annarskonar þekkingu
26 janúar–5 mars

Þemu sýningarinnar eru meðal annars andleg málefni; breytt ástand vitundar og hugvíkkandi efni; viska bundin við náttúru og samfélög fólks, „venjuleiki“ og stofnanavæðing; hugsun og reynsla miðluð með líkamanum; handverk og hæglætislífstíll tengdur því; heimssýn fólks með skyn- eða líkamlegar fatlanir; uppgötvun og ævintýri; gervigreind og síðast en ekki síst, listrænar rannsóknir sem sérstök tegund þekkingar.
Sýningin Brot af annars konar þekkingu stiklar á stóru í þriggja ára rannsóknarverkefninu og sýningarröðinni Annars konar þekking sem hófst í MeetFactory galleríinu í Prag, Tékklandi. Hún státar af verkum völdum af Terezu Jindrová og Evu B. Riebová og beinir sjónum að auðkennandi verkum sem hafa verið sýnd á þeim tíu sýningum sem hafa heyrt undir Annars konar þekking.
Markmið verkefnisins var að sækja í aðra möguleika en skynsemistrúna sem ræður ríkjum í nútímamenningu okkar Evrópubúa. Ætlunin er ekki að dæma rökhugsun og vísindi úr leik, heldur að benda á fleiri burðarstólpa tilveru okkar í heiminum. Venjubundin vestræn hugsun er meðal annars bundin við valdastrúktúra byggða á kúgun (nýlendustefnu, feðraveldið) eða nýtingarhyggju sem eykur á félagsleg, efnahagsleg og umhverfisleg vandamál dagsins í dag. Við teljum að ein af skyldum lista og menningar sé að bjóða þessum kerfum birginn. Það ætti í kjölfarið að skapa jarðveg til þess að auka (sjálfs)meðvitund í samfélaginu.
Þemu sýningarinnar eru meðal annars andleg málefni; breytt ástand vitundar og hugvíkkandi efni; viska bundin við náttúru og samfélög fólks, „venjuleiki“ og stofnanavæðing; hugsun og reynsla miðluð með líkamanum; handverk og hæglætislífstíll tengdur því; heimssýn fólks með skyn- eða líkamlegar fatlanir; uppgötvun og ævintýri; gervigreind og síðast en ekki síst, listrænar rannsóknir sem sérstök tegund þekkingar.
Sýningin í Nýlistasafninu sem varð að veruleika með stuðningi okkar dygga samstarfsaðila, Listar án landamæra, dregur öll þessi ólíku umfjöllunarefni saman á einn stað. Hún býður að mestu leyti upp á verk tékknesks listafólks sem mörg hver voru pöntuð beint af MeetFactory Gallery. Að auki inniheldur sýningin þónokkur verk eftir íslenskt listafólk sem hafa ekki verið hluti af fyrri sýningum í röðinni, en kallast afar vel á við þemun og bæta við nýjum lögum af merkingu.