Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson: Visitasíur

25 september, 202116 janúar, 2022

Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson vinna saman að þverfaglegum myndlistarverkefnum í listasöfnum víða um heim. Þau vinna jafnt með sérfræðingum sem leikmönnum og í verkum sínum skoða þau birtingarform dýra í samfélagslegu, menningarlegu og umhverfislegu samhengi. Verk þeirra afhjúpa menningartákn, sýna fram á hefðir og viðbrögð manna gagnvart dýrum, um leið og þau varpa ljósi á spurningar um náttúruvernd og ólíka afstöðu manna til útrýmingarhættu lífríkisins í vistfræðilegu samhengi.

Vísitasíur er sýning á verkum þeirra og hluti af listrannsóknarverkefninu Ísbirnir á villigötum, unnið í samstarfi sérfræðinga á sviði myndlista, þjóðfræði og náttúru- og umhverfisfræði. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu á fjölþættum tengslum dýra, manna og umhverfis á tímum loftslagshlýnunar. Áhersla verður lögð á að rannsaka birtingarform hvítabjarna á Íslandi í sögulegu og samtímalegu samhengi. Sýningin er unnin í samvinnu við Anchorage safnið í Alaska. Verkefnið er stutt af Rannís.

Sýningarstjóri: Æsa Sigurjónsdóttir.