
- This event has passed.
Claire Paugam: Essentially Untitled
16 júlí, 2022–14 ágúst, 2022

Sýningin „Essentially untitled“ er einkasýning eftir Claire Paugam sem samanstendur af innsetningum og skúlpúturm sem voru skapaðir sérstaklega fyrir rými Ásmundarsalar. Fyrst er gestum boðið að ganga físískt í gegnum mynd til þess að komast inn í salinn, í salnum rísa svo fleiri myndir upp úr gólfinu, loftinu og veggjunum og þær taka yfir. Á sýningunni hefur hver mynd sinn eigin efnisleika og sérstaka framsetningu og þannig brjótast þær undan fyrirframgefnum væntingum okkar.
Úr einu herbergi til víðar
Svart og tómt
Fullt af aðskildum efnum
Heimar innan rýmis
Brjótast fram
„Ljósmyndir eru í raun efnisleiki liðins veruleika, þó við nánari skoðun, bjóða þær uppá nálægar víddir sem taka okkur nær stundinni. Ég sé þær sem dyr sem hægt er að opna, fyrir nýjar frásagnir, sem skapa rými fyrir ferðalög hugans. Ljósmyndir eru sjónhverfingar, en þó eru hin eðlilegaustu viðbrögð að trúa á þær og dýfa sér inn í þær.
Truflaðar ljósmyndir, hugsaðar sem breytilegt efni, sem brotist hafa undan fyrirfram gefnum væntingum, eru til sýnis. Þeim er stillt upp til að fara í gegnum, hreyfa, og fylgja, meðan mögulegar merkingar þeirra myndast með þér.“
Claire Paugam er frönsk listakona (f.1991) og viðtakandi hvatningarverðlauna myndlistasjóðs (2020) sem vinnur þverfaglega og býr í Reykjavík. Eftir útskrift úr MA-námi Listaháskóla Íslands 2016 hefur Claire haldið sýningar á ýmsum stöðum á Íslandi og erlendis svo sem á Moskvutvíæringnum fyrir unga listamenn (2016), á Ljósmyndahátíð Íslands í Gerðarsafni (2018) og D-sals einkasýningu í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsinu (2021). Árið 2019 settist Claire í stjórn Nýlistasafnsins.
Kjarninn í vinnu hennar er að varpa fram spurningum um efnið með því að stilla viðkvæmri reynslu upp gegn hefðbundnum kerfum reglna og túlkunar. Formleysi, óreiða og sú tilfinning að sleppa tökunum eru aðal þemun sem hún kannar. Claire styðst við eðlisávísunina í rannsóknum sínum, hverju verkefni fylgir sérstök efniskennd og uppbygging og þannig getur hún tekist á við afar fjölbreytt efni.