Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Sköpun bernskunnar 2022

19 febrúar, 202217 apríl, 2022

Þetta er níunda sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp sem hluti af safnfræðslu, með það markmið að gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn. Þátttakendurnir vinna verk sem falla að þema sýningarinnar sem að þessu sinni er Fuglar og önnur dýr.

Myndlistarmennirnir sem boðin var þátttaka í ár eru Aðalheiður S.
buy acyclovir online herbalshifa.co.uk/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/acyclovir.html no prescription

Eysteinsdóttir og Helgi Þorgils Friðjónsson. Þau eru bæði landsþekkt fyrir list sína, skúlptúra og málverk, af fólki og dýrum. Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Lundarsel og grunnskólarnir Hlíðarskóli, Oddeyrarskóli og Hríseyjarskóli, sem og Minjasafnið á Akureyri / Leikfangahúsið

Leikskólabörnin vinna sín verk á Listasafninu undir handleiðslu Aðalheiðar og Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur, fræðslufulltrúa og sýningarstjóra. Myndmenntakennarar grunnskólanna sem taka þátt stýra þeirri vinnu sem unnin er sérstaklega fyrir sýninguna í samstarfi við nemendur.

Sköpun bernskunnar hlaut öndvegisstyrk Safnaráðs 2020 til þriggja ára.

Sýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.
buy temovate online herbalshifa.co.uk/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/temovate.html no prescription