
- This event has passed.
Erna Mist: Næturveröld
12 september, 2022–10 október, 2022

Erna Mist (f. 1998 í Reykjavík) er listmálari og pistlahöfundur sem málar á striga og skrifar í blöð. Þrátt fyrir ungan aldur hafa verk hennar staðið til sýnis í London, Mílanó og Reykjavík og selst til sautján landa í þremur heimsálfum. Erna býr bæði í Reykjavík og London en stefnir á útskrift úr The Slade School of Fine Art vorið 2023. Næturveröld er hennar fyrsta einkasýning á Íslandi.
„Málverk eru staðir þar sem þyngdarafl raunveruleikans er tekið úr sambandi og skilin milli svefns og vöku, draums og veruleika, mín og þín – hverfa.“ -Erna Mist