
- This event has passed.
Freyja Reynisdóttir & Jónína Helgadóttir: Uppljómandi
21 ágúst, 2021–2 september, 2021

Uppljómandi
Samsýning Freyju Reynisdóttur og Jónínu Björgu Helgadóttur opnar laugardaginn 21. ágúst kl. 15:00 í Gallery Port.
Freyja Reynisdóttir og Jónína Björg Helgadóttir eru báðar myndlistarmenn og hafa í gegnum tíðina unnið oft saman, aðallega að verkefnum eins og RÓT, listaverkefni sem þær, ásamt Karólínu Baldvinsdóttur, stóðu að í fimm ár á Akureyri. Þær eru einnig báðar stofnmeðlimir Kaktus á Akureyri og hafa sýnt á samsýningum á mörgum stöðum, m.a. Palais de Tokyo í París.
Að auki eru þær æskuvinkonur.
Að auki eru þær æskuvinkonur.
Sýningin ,,Uppljómandi” fjallar um samtal. Bæði þetta innra samtal sem fólk á við sjálft sig en líka samskonar náið samtal sem sumir eru svo heppnir að geta átt við örfáa aðra. Fólk sem er þeim nægilega náið til að engin ritskoðun eigi sér stað og skilningur þeirra á milli svo góður að hægt sé að ræða saman næstum eins og maður væri að eiga samtal við annað persónuleika-brot sjálf síns.
Jónína Björg Helgadóttir er fædd 1989 og býr og starfar á Akureyri. Eftir útskrift úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2015 hefur hún unnið að eigin myndlist, stýrt listaverkefninu RÓT og var ein stofnenda listarýmisins Kaktus á Akureyri. Hún hefur haldið sex einkasýningar og sýnt á fjölda samsýninga, hérlendis sem og erlendis. Hún fæst að miklu leyti við málverk og grafík en fígúratív myndverk hennar hafa oft konuna í forgrunni. Birta og hreinir litir eru áberandi í verkum hennar og ákveðin þreyta í mannskapnum er gegnumgangandi þema.
,,Einvera er fylgifiskur listsköpunar minnar. Ég er ein í huga mínum, ein í undirmeðvitundinni. Stundum eru þar þó aðrir á ferð. Kannski var það öll endurskoðunin sem deildi mér í tvennt og færði mér samveru þessa fólks. Ég er tortryggin en ég kann samt að meta samveruna.”
Freyja Reynisdóttir, fædd 1989, býr nú í Reykjavík og stundar meistaranám í frjálsri myndlist við Listaháskóla Íslands. Hún notar verk sín til þess að framkvæma tilraunir í leit að persónulegum sannleikum. Hún telur ferli túlkunar og skynjunar ákjósanlega leið til að eiga í samskiptum um það óyrðanlega en áþreyfanlega í skilningi okkar á sjálfinu og veruleika okkar. Freyja lauk námi frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2014 og hefur starfað sem myndlistarmaður bæði hér- og erlendis frá þeirri útskrift. Auk fjölda sýninga hér á landi hefur hún sýnt verk sín, bæði á einka- og samsýningum, í Danmörku, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Frakklandi og á Spáni. Þá er hún einn af stofnendum Kaktus listasamsteypunnar á Akureyri.