
- This event has passed.
Geirþrúður Einarsdóttir: Staður
20 ágúst, 2022–10 október, 2022

Á sýningu Geirþrúðar Einarsdóttur Staður gefur að líta þrívíð málverk, eins konar lágmyndir, sem sækja innblástur sinn til landslags og loftmynda af náttúrunni á óræðum stöðum. Í verkum sínum leitast Geirþrúður við að fanga víðáttu á litlum fleti í landslagi sem þrengir stöðugt að manni.
Hún veltir fyrir sér tilfinningunni og andstæðunni sem birtist í því að þjóta áfram en standa á sama tíma grafkyrr. Verk hennar vísa í handverkið, þau eru unnin á nákvæman hátt; skorin út í karton og klædd með máluðum hörstriga.
Stundum myndast toppar og skurðir á jaðri strigans og brjóta þannig upp ferningslaga formið.
Geirþrúður Einarsdóttir (f. 1989) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2016. Haustið eftir útskrift var hún starfsnemi í listamannarekna rýminu A-Dash í Aþenu. Í dag býr hún og starfar í Reykjavík. Hún hefur sýnt á ýmsum samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Staður er hennar fyrsta einkasýning.
Details
- Start:
- 20 ágúst, 2022
- End:
- 10 október, 2022
- Event Tags:
- Geirþrúður Einarsdóttir, Listval
- Website:
- https://listval.is/syningar/geirthrudur-einarsdottir-stadur/?mc_cid=c773e05962&mc_eid=8159bbcb2e
Venue
- Listval
-
Hólmaslóð 6
Reykjavík, 101 Iceland + Google Map - View Venue Website