Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Jarðtenging

18 júní, 202224 júlí, 2022

Listamenn: Maryse Goudreau, Hugo Llanes, Zinnia Naqvi, Sigrún Gyða Sveinsdóttir,
Marzieh Emadi & Sina Saadat
Sýningarstjóri: Þorbjörg Jónsdóttir

Opið þri-sun 14:00-17:00

Myndlistarsýningin Jarðtenging / Grounded Currents opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri  laugardaginn 18júní 2022 KL 14 með verkum listafólksins: Maryse Goudreau, Hugo Llanes,  Zinnia Naqvi, Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Marzieh Emadi & Sina Saadat  

Sýningin er alþjóðleg samsýning yngri kynslóðar listafólks. Þau vinna ekki út frá einni einstakri sameiginlegri hugmynd og verkin eru sum marglaga í merkingu sinni eða nokkuð flókin enda verður það helst ára staðarins & óvenjulegt rýmið sem að mótar öðru fremur umgjörð fyrir samstarf og heild og virkjar sköpunarkraftinn.. 

Þau vinna sjálfstætt á staðnum og/eða fyrirfram að nýjum verkum. «Verksmiðjan er ekki aðeins  rými sýningarstaðarins, heldur einnig rými athafna sem mótast og er mótað af tíma- og  rýmisbundnum samskiptum. Verksmiðjan er óhefðbundið rými og ekki hlutlaust sem hefur fremur  tekið mið af ljóðrænni afstöðu listamannanna sem þar haft sýnt og starfað » Listafólkið á ýmislegt sammerkt og eru að nokkru leiti valin út frá því: Þau vinna öll með videómiðilinn og þá líka  teiknimyndir eða animation ásamt ýmsum öðrum aðferðum samtímalistar, þau eru með  manneskjuna, samfélagið til athugunar og/eða umhverfið og náttúruna sem að á hug margra á  þessum síðustu tímum.