Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Gudrita Lape: solidus liquidus

24 september, 202213 október, 2022

Áherslur sýningarinnar eru meðal annars: að kynna betur notkun matar og lífefna í myndlist og að hefja umræðu um matarsóun og aktívisma því tengdan í gegnum myndlist. Verkefnið er framhald rannsóknar hennar á forgengilegum verkum þar sem náttúruleg litarefni, matarlist og lífefni eru í forgrunni.

Gudrita útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2012 og lauk nýlega námi í textíl og tækni við Fabricademy – Fab Lab textíl akademíu í Barselóna árið 2021 þar sem meðal annars kóðun, snjalltextíl og hönnun á náttúrulegum “efnum” (biochromes, biocomposites, biomaterials, grown materials) voru kennd. Íslenska-litháíska listakonan býr bæði á Íslandi og á Spáni síðan 2020 og sýningin mun sýna brot af þessum heimi. Matarleifar, íslensk og erlend flóra munu sameinast og umbreytast í gegnum ræktun, gerjun og þurrkun í þrívíða innsetningu gagnvirkra sveigjanlegra og hálf sveigjanlegra efna. Verkefnið gefur Vestfirðingum sem og öðrum gestum tækifæri til að líta inn í þennan lifandi heim sem er enn ókunnugur á Íslandi.

Details

Start:
24 september, 2022
End:
13 október, 2022
Event Tags:
, ,

Venue

Gallerí Úthverfa
Aðalstræti 22
Ísafjörður, 400 Iceland
+ Google Map
View Venue Website