
- This event has passed.
Guðrún Einarsdóttir: Málverk
7 október, 2021–30 október, 2021

MÁLVERK – myndlistarsýning Guðrúnar Einarsdóttur í Gallerí Gróttu á Menningarhátíð Seltjarnarness 2021.
Verkin á sýningunni eru öll unnin á undanförnum árum. Guðrún hefur, frá útskrift úr málaradeild Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1988, gert tilraunir með olíuliti, olíur og aðferðir þar sem birtingarform efnanna opna sífellt nýja sýn á virkni efnanna við gerð verkanna.
Verkin eru lengi í vinnslu og taka breytingum í ferlinu eins og í öllu náttúruferli sem Guðrún hefur sótt innblástur í frá upphafi ferilsins.
Guðrún var útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 1999.