Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Helga Pálína Brynjólfsdóttir: Teningar

27 janúar, 202227 febrúar, 2022

„Textíllistakonan Helga Pálína Brynjólfsdóttir hefur nú um árabil gert tilraunir með að sauma í kletta, litglæða grábrún blæbrigði móbergsins en líka spýtur, nýjar og gamlar. Hún vindur og vefur, holar aftan og stingur framan til að laða fram skúlptúr, línur og form.

Á sýningunni í Pálshúsi kallar Helga Pálína með þráðum sínum fram nýjar tengingar í spýtum og steinum, hyllir náttúruna og söguna, umbreytir henni og víkkar sýn með litadýrð og fíngerðu bróderíi. Fortíðin og framtíðin, hið harða og hið mjúka, hið kvenlæga og hið karllæga, djúp jarðar og húrrandi nútímatækni stíga hér leikandi dans“.
buy amitriptyline online www.mydentalplace.com/wp-content/themes/twentytwelve/inc/en/amitriptyline.html no prescription

(Texti: Jórunn Sigurðardóttir)

Helga Pálína Brynjólfsdóttir (f. 1953) útskrifaðist úr textíldeild UIAH, Listiðnaðarháskólanum í Helsinki Finnlandi (nú Aalto University) árið 1988 og hafði áður lokið B.Ed prófi frá Kennaraháskóla Íslands.

Frá árinu 1989 hefur hún kennt textílþrykk í Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, við Textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík og Textíldeild Myndlista-og handíðaskóla Íslands.
buy prelone online www.mydentalplace.com/wp-content/themes/twentytwelve/inc/en/prelone.html no prescription

Hún vinnur að margvíslegum textílverkum og bókverkum og hefur tekið þátt í fjölmörgum sýningum hér heima og erlendis.

Opið mán-lau 11-18

Details

Start:
27 janúar, 2022
End:
27 febrúar, 2022
Event Tags:
,
Website:
https://www.facebook.com/events/963827054508362/

Venue

The Heart of Reykjavík
Laugavegur 12b
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Venue Website