Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Horse Inside Out eftir Wunderland

11 nóvember, 202223 nóvember, 2022

Horse Inside Out eftir  Wunderland  er upplifun fyrir skilningarvitin þar sem áhorfandinn tekur virkan þátt.  Skúlptúrinn rúmar eina manneskju í senn sem gengur í gegnum nokkur rými þar sem rödd og leiðsögumaður leiðir þátttakandann í gegnum verkið.

Bókun HÉR

Aldurstakmark: 14 ára og eldri

Aðgengi: Ekki fyrir einstaklinga sem eiga erfitt með gang.

Í Horse Inside Out  verður þátttakendum hleypt inn á 20 mínútna fresti og tekur hver innsetning 15 mínútur. Þátttakendur geta séð lausa tíma þegar þeir skrá sig HÉR.  Frítt er inn á viðburðinn sem fer fram á ensku.

Norræna list- og rannsóknarverkefnið Horse Inside Out hefur verið í þróun í nokkur ár og verið sett upp í  Danmörku, Finnlandi og nú á Íslandi. Rannsóknin er þverfagleg og er markmiðið að fylgjast með hvernig alltumlykjandi þátttökulistaverk eykur meðvitund þátttakenda um eigin líkama, nærveru og skynjun á umhverfinu og breytir jafnvel upplifun þeirra á sjálfum sér og veruleika þeirra.  Það er Wunderland sem stendur fyrir verkefninu í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi og Listaháskóla Íslands. Wunderland var stofnað árið 2007 af Metta Aakjær og  vinnur verkefni í samstarfið við listafólk úr fjölbreyttum listgreinum í alþjóðlegu samstarfi.

Um verkið: Sem þátttakandi ferð þú einn þíns liðs, berfættur, inn um rauf á skúlptúr sem hefur lífræna lögun og útlit. Augun aðlagast myrkrinu þar inni, mjúk og gróf form birtast þér. Þú finnur vísbendingar um dýr og önnur fyrirbæri, loftið er þrungið krydduðum ilmi, jörðin er mjúk og hreyfanleg. Þú ert hvattur til að gefa þér góðan tíma til þess að kanna umhverfið og leita jafnvægis. Inni í öðru hólfi hittir þú manneskju sem er lík þér en samt… ókunnug? – hluti af hjörð þinni? – skugginn af sjálfum þér?

„Þegar við erum meðvituð um líkama okkar og skynfæri upplifum við sjálf okkur og sambandið við aðra á annan hátt sem getur valdið umbreytingum og jafnvel haft byltingarkennd áhrif á reynslu okkar af heiminum.

Upplifunin býður uppá tengingu við innsæið, innri visku og goðfræðileg minni sem búa í undirmeðvitund okkar.“ – Mette Aakjær, listrænn stjórnandi Wunderland.

Listrænt teymi:

  • Mette Aakjær (listrænn stjórnandi Wunderland, höfundur og listamaður, DK)
  • Mona Møller Schmidt (leikmyndahönnuður, DK)
  • Thoranna Bjørnsdottir (tónskáld, IS)
  • Sonja Winckelmann Thomsen (rithöfundur, DK)
  • Amanda Axelsen Sigaard (grímu- og búningahönnuður, aðstoðarleikmyndahönnuður, DK)
  • Amanda Vesthardt (aðstoðarleikmyndahönnuður),
  • DimsOs (tæknimál, DK).
  • Jesper Lyng (bókunarkerfi)

Verkefnið fer fram í þremur löndum í samstarf við söfn og háskóla:

Danmörk: Interacting Minds Centre and Faculty of Communication and Art, Árósarháskóli og ARoS listasafnið

Finnland: Education in Dance and Somatics, ISLO og AHJO Gallery.

Ísland:  Listaháskóli Íslands og Listasafn Reykjavíkur