
- This event has passed.
Joris Rademaker: Vöxtur og tími
3 september, 2021–26 september, 2021

Joris Rademaker opnar myndlistarsýningu, í SÍM-salnum, Hafnarstræti 16 (Reykjavík), föstudaginn 3. september kl. 16 til 18. Heiti sýningarinnar er Vöxtur og tími, og stendur sýningin til og með 26. september. Opið er á virkum dögum milli klukkan 10 til 16 og um helgar frá kl. 14 til 17.
Sýningin er innsetning þar sem myndir af höndum og fótum listamannsins eru málaðar á ríspappír með svörtum lit, einnig fundnir hlutir úr náttúrunni. Verkin, bæði þau tví- og þrívíðu mynda samtali hvort við annað. Þau eru innblásin af vaxtarferli náttúrunnar.
Margt er táknrænt og byggir titill sýningarinnar á því.
Verkin á sýningunni eru öll frá 2020 og 2021.
List Joris er oftast lífræn og túlkar og tjáir tilfinningar sem tengsl og samband manns og náttúru á persónulegan hátt. Óspillt náttúra Íslands gefur Joris sífellt innblástur.
Joris Rademaker (f.1958) stundaði nám í mynd- og handmennt í Tilburg í Hollandi 1977-83 og í AKI listaakademíunni í Enschede í Hollandi 1983-86. Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar á Íslandi, í Hollandi, Svíþjóð og Þýskalandi. Einnig hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga s.s. í Listasafni Reykjavíkur og Listasafninu á Akureyri.