
- This event has passed.
Kóróna, Leirlistafélagið 40 ára
16 október, 2021–29 október, 2021

Verið velkomin á opnun sýningar Leirlistafélags Íslands, Kóróna í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík laugardaginn 16.
október. Sýningin Kóróna er lokasýning Leirlistafélags Íslands á 40 ára afmælisári félagsins.
Oft grínumst við með að öll séum við keramikerarnir dálitlar drottningar inn við beinið. Í lokasýningu afmælisársins bregðum við á leik þar sem húmor, glens og konungleg gleði ræður ríkjum í fjölbreyttum formum og útfærslum á kórónum félagsmanna sem krýna nú afmælisárið. Sýningin er opin til 29. október. Opnunin er frá kl. 15:00 – 17:00