
- This event has passed.
Nýleg aðföng
29 maí, 2021–14 nóvember, 2021

Eitt af meginhlutverkum listasafna er að safna myndlist og miðla safneigninni. Því miður er ekkert fjármagn áætlað á fjárhagsáætlun Listasafnsins á Akureyri til kaupa á listaverkum og þannig hefur það verið í meira en áratug. Þetta stendur vonandi til bóta, enda mikilvægt að safna með reglubundnum hætti listaverkum sem endurspegla listasöguna.
Listasafninu hafa aftur á móti borist margar góðar gjafir á síðustu árum og byggir sýningin Nýleg aðföng á þeim verkum.
Í söfnunarstefnunni segir meðal annars: „Söfnunarsvið Listasafnsins á Akureyri er allt landið en jafnframt leggur safnið sérstaka áherslu á söfnun verka sem tengjast Norðurlandi.“ Móttaka gjafa takmarkast af því markmiði að Listasafnið byggi upp heillega og markvissa safneign. Safnstjóri og fulltrúar í Listasafnsráði fjalla um og taka ákvarðanir er varða móttöku gjafa.
Ákvörðunin byggir á söfnunarstefnu safnsins, markmiðum þess og stöðu safneignar á hverjum tíma.
Sýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
Details
- Start:
- 29 maí, 2021
- End:
- 14 nóvember, 2021
- Event Tags:
- Akureyri Art Museum, Hlynur Hallsson, Listasafnið á Akureyri
- Website:
- http://www.listak.is/is/syningar/yfirstandandi-syningar/nyleg-adfong
Venue
- Akureyri Art Museum
-
Kaupvangsstræti 8-12
Akureyri, 600 Iceland + Google Map - View Venue Website