
- This event has passed.
Regina Magdalena: Gáttir
11 september, 2021–26 september, 2021

Laugardaginn 11. september opnar Regina Magdalena einkasýningu í Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum sem stendur til sunnudagsins 26. september.
Verkin á sýningunni eiga sér uppruna í dulúðlegum upplifunum hversdagsleikans og hvetja okkur til að gægjast undir yfirborðið.
Yfirlitssýningin samanstendur af olíumálverkum, teikningum, textum og videoverkum.
Opnunartími:
Fimmtudaga og föstudaga kl. 15:00–18:00
Laugardaga og sunnudaga kl. 14:00–18:00