
- This event has passed.
Viðnám
28 apríl, 2022–2 febrúar, 2023

Sýningin Viðnám er þverfagleg sýning sem brúar bilið milli myndlistar og vísinda. Verkin á sýningunni eru lykilverk í eigu Listasafns Íslands sem skapa áhugavert samtal myndlistarinnar við vísindaleg málefni og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Líta má á orðið viðnám út frá eðlisfræði. Það er samheiti orðsins rafmótstaða, sem er tregða rafleiðara við að flytja rafstraum. Viðnám getur einnig vísað til viðspyrnu við neyslu sem ábyrgir þegnar verða að tileinka sér. Auk þess vísar viðnám til þeirrar mikilvægu mótstöðu sem við verðum að beita gegn hlýnun jarðar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Listir gefa fólki tækifæri til að verða fyrir áhrifum, því listir geta snert við tilfinningum. Listaverk geta vakið upp spurningar sem hvetja áhorfendur til að spyrja sig knýjandi spurninga. Listræn nálgun getur breytt því hvernig fólk upplifir heiminn í kringum sig. Listamenn vinna auk þess með þætti eins og smekk, skynjun, tilfinningar, sannfæringu, gildi og sjálfsmyndina sem er mikilvæg í samfélagi í mótun. List er líka fær um að efla huga mannsins og sýna áhorfandanum fjölbreytt sjónarhorn og fá hann til að endurskoða eigin hugmyndir um heiminn. Að fjalla um málefni náttúrunnar frá ólíkum hliðum auðveldar breytingar og þróun gildismats sem er nauðsynlegt í ferðalaginu að sjálfbæru samfélagi. Þar sem allar aðstæður eru einstakar hugsum við hlutina til enda, endurspeglum og byggjum upp nýjan skilning.
Það er ljóst að það krefst sameiginlegs átaks að ná sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030. Það felur í sér að samþætta, virkja og skapa fjölbreytta þekkingu og sjónarmið. Það krefst virkrar þátttöku allra og fjölbreyttra nálgana. Ósjálfbær ofneysla almennings er stórt vandamál í samfélaginu. Við verðum að taka neysluvenjur okkar til endurskoðunar og veita ofneyslu viðnám.
Ekkert í heiminum stendur eitt og sér. Sérhver hlutur er hlekkur í keðju og er þannig tengdur öllum hinum hlekkjunum. Þessi keðja alheimsins verður að haldast órofin. Keðjuverkunin sameinar alla hluti og ferli í eina heild og skapar þannig forsendur fyrir jafnvægi. Allir hlutir í alheiminum, þar á meðal mannslíkaminn, eru samsettir úr orku, sem tengist og kemur saman í lokuðum hringrásum. Lífríki jarðarinnar er háð keðjuverkandi öflum sem tengjast saman eins og gangverk tannhjóla. Ef eitt tannhjólanna verður fyrir varanlegu hnjaski, þá raskast jafnvægið sömuleiðis varanlega. Orka er undirstaða alls efnis og hefur áhrif á allt annað. Sú orka sem skapar eina manneskju, skapar einnig allar aðrar lífverur. Orka er alltaf flæðandi og síbreytileg. Hraðinn er tengdur þessari orku og er einnig breytilegur. Við erum öll samtengd og tilfinningar okkar skapa ómun sem hefur áhrif á allt og alla aðra. Öll orkan á jörðinni byggir á sambærilegum lögmálum þó svo að hún geti haft skýr sérkenni. Tengingar, óreiða, regla, hrynjandi, síbreytileiki, óendanleiki og samtengingar eru allt eiginleikar sem tengjast orkusviði jarðar.
Listamenn sem eiga verk á sýningunni
Davíð Örn Halldórsson
Dodda Maggý
Eirún Sigurðardóttir
Erla Þórarinsdóttir
Eyborg Guðmundsdóttir
Finnur Jónsson
Gerður Helgadóttir
Guðmunda Andrésdóttir
Jóhannes Kjarval
Karl Kvaran
Kristinn Hrafnsson
Kristján Guðmundsson
Magnús Helgason
Ransu
Sigrid Vadingojer
Sigurður Árni Sigurðsson
Tumi Magnússon
Þorvaldur Skúlason
Sýningarhöfundur: Ásthildur Jónsdóttir
Details
- Start:
- 28 apríl, 2022
- End:
- 2 febrúar
- Event Tags:
- Davíð Örn Halldórsson, Dodda Maggý, Dodda Maggý, Eirún Sigurðardóttir, Eirún Sigurðardóttir, Erla Þórarinsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Eyborg Guðmundsdóttir, Eyborg Guðmundsdóttir, Finnur Jónsson, Gerður Helgadóttir, Guðmunda Andrésdóttir, Jóhannes Kjarval, Karl Kvaran, Kristinn Hrafnsson, Kristján Guðmundsson, Listasafn Íslands, Magnús Helgason, Ransu, Sigrid Vadingojer, Sigurður Árni Sigurðsson, The National Gallery of Iceland, Tumi Magnússon, Þorvaldur Skúlason
- Website:
- https://www.listasafn.is/list/syningar/vidnam/
Venue
- The National Gallery of Iceland
-
Fríkirkjuvegur 7
Reykjavík, 101 Iceland + Google Map - View Venue Website