
- This event has passed.
Sesselja Þrastardóttir: Hugræn skikkja
2 desember, 2021–5 desember, 2021

Sesselja Þrastardóttir er 31 árs gömul og býr ásamt manninum sínum og hundi í gamla bænum í Hafnarfirði.
Hún útskrifaðist með BA gráðu í arkitektúr frá Listaháskólanum vorið 2020 og vinnur í dag sem arkitekt og gæðastjóri hjá Arkís arkitektum.
Sýningin Hugræn skikkja er hennar fyrsta listasýning og er innblásin af tilfinningum og upplifunum.
Í verkunum má finna okkur sjálf, einhvern sem við elskum og/eða söknum. Þetta erum við öll. Hetjur, umvafin hugrænum skikkjum.
„Tilfinningar
Þær eru þarna
innra með þér
ekki flýja þær
leyfðu þeim að
umvefja þig
kenna þér
yljaog móta
sem manneskju.“
Hin hugræna skikkja er hluti af okkur, tákn fyrir allar tilfinningarnar sem við göngum í gegnum, minningar og þá reynslu sem við berum á herðum okkar.
Skikkjan gerir okkur að því sem við erum. Ósýnileg veitir hún okkur huglægan kraft eins og nýju fötin gáfu keisaranum á meðan hann trúði á þau.
Skikkjan er í raun allt sem við leitum, viljum og þurfum; kærleikurinn í eymdinni og félagi í einmannaleikanum.
Hún minnir okkur á eitt af því mikilvæga í lífinu, að elska sjálfan sig.
buy Alphagan generic https://andnewbloonline.com over the counter
Skikkjan veitir okkur vörn gegn áreiti, ver okkur fyrir illum (mis)sýnilegum öflum og sjálfsniðurbroti.
Á sama hátt og skikkjur eru tákn ofurhetja í myndasögum gerir Hugræn skikkja okkur öll að hetjum í okkar eigin lífi.