
- This event has passed.
Sigurður Angantýsson Hólm: Aðskotahlutir
24 ágúst, 2021–19 september, 2021

Sigurður Angantýsson Hólm opnar sýningu sína AÐSKOTAHLUTIR – fimmtudaginn 26. ágúst 2021 kl. 17.
Sigurður útskrifaðist með BA í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur verið sjálfstætt starfandi hönnuður og myndlistarmaður síðan þá. Hann starfar sem leikskólakennari í leikskóla Seltjarnarness og er að klára meistaranám í leikskólafræðum.
Sýningin Aðskotahlutir samanstendur af málverkum og teikningum frá þessu ári sem eru flestallar unnar á viðarplötur. Notast var við blandaða tækni og eru verkin aðallega gerð með olíulitum, akrýl og bleki. Myndirnar eru draumkenndar í eðli sínu og lýsa frekar þeim landslögum sem búa í undirmeðvitundinni okkar heldur en þeim sem við sjáum dags daglega.
Aðskotahlutir vísa hér í allt sem við getum ekki borið kennsl á í eigin hugarheimum.
Eitthvað sem við vitum ekki hvaðan kemur eða af hverju.
ATH! Sýningin stýrist af þeim takmörkunum sem Covid-19 setur okkur.
Sýningin stendur til 19. september.
Opið mán-fim 10-18:30, fös 10-17 (lau frá 1 sept. kl. 11-14)