
- This event has passed.
Solander 250: Bréf frá Íslandi
3 desember, 2022–29 janúar, 2023

Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að 2022 eru 250 ár liðin frá fyrsta erlenda vísindaleiðangrinum til Íslands, 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carl Linnaeus, sænski náttúrufræðingurinn Daniel Solander. Solander og félagar komu að landi í Hafnarfirði og ferðuðust til Bessastaða, Þingvalla, Geysis, Skálholts og klifu að lokum Heklu, áður en þeir héldu heim á leið. Þeir skrásettu m.a. ýmislegt um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð. Tíu íslenskir grafíklistamenn frá Íslenskri grafík túlka á sýningunni þessa atburði og þær breytingar sem hafa átt sér stað á landi og þjóð.
Samtímis verður sýningin Paradise Lost opnuð. Þar sýna 10 listamenn frá Kyrrahafssvæðinu, en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Sýningin hefur áður verið sett upp á Nýja-Sjálandi, í Ástralíu og Svíþjóð. Sýningarnar tvær mynda því einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í gegnum ferðir Daniel Solanders.
Details
- Start:
- 3 desember, 2022
- End:
- 29 janúar
- Event Tags:
- Aðalheiður Valgeirsdóttir, Alexis Neal, Anna Líndal, Daði Guðbjórnsson, Dagmar Dyck, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Jenna Packer, Jo Ogier, John McLean, John Pusateri, Laura Valentino, Listasafnið á Akureyri, Lynn Taylor, Michel Tuffery, Sharnae Beardsley, Soffía Sæmundsdóttir, Tabatha Forbes, Valgerður Björnsdóttir, Viktor Hannesson
- Website:
- http://www.listak.is/is/syningar/naestu-syningar/solander-250-bref-fra-islandi
Venue
- Listasafnið á Akureyri
-
Kaupvangsstræti 8-12
Akureyri, 600 Iceland + Google Map - View Venue Website