
- This event has passed.
Ljósmyndahátíð Íslands
13 janúar, 2022–27 mars, 2022

Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmyndahátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og þá undir nafninu Ljósmyndadagar. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms. Á dagskrá hátíðarinnar eru ljósmyndasýningar með erlendum og íslenskum listamönnum, fyrirlestrar, ljósmyndabókakynningar og ljósmyndarýni.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur skipuleggur ljósmyndarýnina og býður erlendum safnstjórum, sýningastjórum og fagfólki í greininni til landsins.
Samstarfsaðilar um Ljósmyndahátíð Íslands 2022 eru: Ásmundarsalur, BERG Contemporary, Félag íslenskra samtímaljósmyndara, Gallery Port, Gerðarsafn, Hafnarborg, Listasafn Íslands, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, RAMskram, Þjóðminjasafn Íslands.
Stjórnendur hátíðarinnar eru Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen.
Details
- Start:
- 13 janúar, 2022
- End:
- 27 mars, 2022
- Event Tags:
- Ásmundarsalur, BERG Contemporary, Gallery Port, Gerðarsafn, Hafnarborg, Listasafn Íslands, Ljósmyndahátíð Íslands, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Ramskram, The Icelandic Photo Festival, TIPF, Þjóðminjasafn Íslands
- Website:
- https://tipf.is/en/about/
Venue
- City of Reykjavík
-
Reykjavík
Reykjavík, Iceland + Google Map - View Venue Website