
- This event has passed.
Þórdís Erla Ágústsdóttir: Of ung fyrir krabbamein? Saga Sóleyjar
23 október, 2021–21 nóvember, 2021

Í tilefni af bleikum október og árveknisátaki um krabbamein standa Brakkasamtökin fyrir ljósmyndasýningu um krabbameinsferli ungrar konu sem er BRCA arfberi.
Of ung fyrir krabbamein? Saga Sóleyjar opnar 23. október næstkomandi í Gallery Ramskram, Njálsgötu 49
Ljósmyndirnar eru eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttir sem hefur fylgt Sóleyju eftir í nokkra mánuði.
Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með brjóstakrabbamein aðeins 27 ára gömul. Sóleyju datt í hug að athuga hvort hún hefði BRCA2 meinvaldandi breytingu í geni þegar Íslensk Erfðagreining opnaði aðgang að þeim upplýsingum vorið 2019. Hún var 25 ára á þessum tíma og ekki þekkt áhætta um krabbamein í nánustu fjölskyldu Sóleyjar. Í kjölfar niðurstöðu greiningarinnar um að vera BRCA2 arfberi hélt Sóley að hún myndi byrja í reglulegu eftirliti en það átti ekki að byrja fyrr en eftir fimm ár og átti hún að koma aftur þá. Tveimur árum síðar finnur Sóley Björg sjálf hnút í brjóstinu og greinist í kjölfarið með brjóstakrabbamein. Hún hefur nú farið í lyfjameðferð, tvöfalt brjóstnám og nýlokið geislameðferð.
Myndefni ljósmynda sýningarinnar er dramatískt og það verður ekkert reynt að komast hjá því þar sem ætlunin er að undirstrika það hvernig lífið með BRCA getur umbylt lífi fólks. Sóley Björg er hugrökk ung kona sem er tilbúin til að segja og sýna sögu sína til að vekja athygli á þessu mikilvæga málefni. Sóley Björg deilir ferlinu sínu á instagram: soleybjorg.
Í tengslum við sýninguna verða haldnir fræðslufundir um arfgeng krabbamein, BRCA og aðrar erfðabreytingar. Sýningin mun standa yfir 23. október – 21. nóvember 2021 en verður síðan farandssýning um landið.
Markmið:
Markmiðið með ljósmyndasýningunni og fræðslufundunum sem hefjast í lok október er að miðla nýjustu upplýsingum og rannsóknum um meinvaldandi breytingar og arfgeng krabbamein. Ljósmyndasýningin er haldin til vitundarvakningar fyrir bæði almenning og þá sem ákveða umgjörð og stefnu heilbrigðiskerfisins sem og fyrir fólk með meinvaldandi breytingu.
buy prelone online https://www.mobleymd.com/wp-content/languages/new/prelone.html no prescription
Einnig að upplýsa og fræða, ná til arfbera, fræðimanna, aðstandenda og hvetja til áframhaldandi umræðna og rannsókna á sviðinu. Síðast en ekki síst er markmiðið að vekja athygli á stöðu kvenna og karla varðandi arfgeng krabbamein á Íslandi í heild sinni.