Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir: TÍMAFLAKK

11 júní, 202230 júní, 2022

Laugardaginn 11. júní kl. 16 verður opnun sýning á verkum Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur í Úthverfu á Ísafirði.

Sýningin ber heitið TÍMAFLAKK og stendur til 30. júní. Listakonan verður viðstaddur opnun sýningarinnar og boðið verður uppá létt spjall og veitingar.

Í hugleiðingum Þórunnar um sýninguna segir: Blanda af útsaum og blásaum; launhelgum Egyptalands; afa mínum; konum í ættlegg Ástu; gjöfum úr þessu lífi – mínu og annarra; sumt lánað úr bókum, mínum hugarheimi og löngu liðnum tíma.

Þórunn Elísabet stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún hefur haldið einkasýningar, samsýningar og unnið við fjölda verkefna í leikhúsum og kvikmyndum sem búninga- og leikmyndahönnuður. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til bæði Eddunnar og Grímunnar fyrir verk sín. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir búninga í Rómeó og Júlíu Vesturports og Leg Þjóðleikhússins. Þórunn Elísabet hefur stýrt og hannað fjölda safnasýninga. Í Gerðubergi var haldið Sjónþing helgað hennar listamannsferli fyrir nokkrum.

Starfsemi Úthverfu nýtur styrkja fyrir einstök verkefni úr Myndlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og frá Ísafjarðarbæ.

Details

Start:
11 júní, 2022
End:
30 júní, 2022
Event Tags:
,
Website:
https://www.facebook.com/events/1137772206789291/

Venue

Gallerí Úthverfa
Aðalstræti 22
Ísafjörður, 400 Iceland
+ Google Map
View Venue Website