Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Til sýnis: Hinsegin umfram aðra

8 október, 202220 nóvember, 2022

Sýningin sem hlotið hefur titilinn Til sýnis: Hinsegin umfram aðra, er sýning þar sem tekin er fyrir hinsegin myndlist og hinseginleiki í listsköpun og söfnum. Sýningunni stýra þær Ynda Eldborg, listfræðingur og Viktoría Guðnadóttir, myndlistamanneskja. Sýningin spannar bæði verk úr safneign Nýlistasafnsins, valin með hinsegin gleraugum og áralangri þekkingu sýningarstýranna, svo og ný verk sköpuð af hinsegin myndlistarfólki. Á haustmánuðum 2021 fóru Ynda og Viktoría í gegnum safneign Nýlistasafnsins, og völdu nokkur verk sem hægt er að sjá eða túlka sem hinsegin. Listafólkinu var svo boðið að skapa ný verk sem kallast á við hluta þeirra verka sem Ynda og Viktoría höfðu forvalið, og þannig dregið fram og  hafið sjónrænt samtal við hinseginleika verka úr safneign. Listafólkinu var frjálst að velja hvaða verk sem var og búa til nýtt verk án þess að nokkrar hömlur væru lagðar á vinnu þeirra eða efnis meðferð. Nýju verkin og verkin úr safneigninni eru svo sýnd samhliða.

listamanneskjurnar: Anna Maggý, Ari Logn, BERGHALL- Anna Hallin & Olga Bergmann, Dorothy Iannone, Hrafna Jóna Ágústsdóttir, Níels Hafstein, Ragna Hermannsdóttir, Rb Erin Moran, Regn Sólmundur Evu, Róska, Svala Sigurleifsdóttir, Stephen Lawson and Viktoria Gudnadottir.

Sýningarstjórar: Ynda Eldborg and Viktoría Guðnadóttir.