Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Nemendur listnáms- og hönnunarbrautar VMA: Útskriftarsýning

20 nóvember, 202128 nóvember, 2021

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er sjötta árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst.

Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með. Nemendur fá eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.

 

Details

Start:
20 nóvember, 2021
End:
28 nóvember, 2021
Event Tags:
Website:
http://www.listak.is/is/syningar/yfirstandandi-syningar/utskriftarsyningar-vma-2021

Venue

Akureyri Art Museum
Kaupvangsstræti 8-12
Akureyri, 600 Iceland
+ Google Map
View Venue Website