Síðasti fimmtudagur í hverjum sumarmánuði er fimmtudagurinn langi!
Í sumar taka fjöldi safna og sýningarstaða í miðbænum sig saman og bjóða upp á á lengdan opnunartíma síðasta fimmtudagskvöld í júní, júlí og ágúst. Þá er tilvalið að bregða sér af bæ og skoða fjölbreyttar listasýningar, kíkja við á vinnustofum listamanna, heimsækja listamannarekin rými, gallerí og söfn – og upplifa líflega myndlistarsenu miðborgarinnar! Enginn aðgangseyrir og boðið verður upp á ýmsar óvæntar uppákomur. Að auki verða sérstök tilboð á ýmsum kaffi- og veitingahúsum þessi fimmtudagskvöld.