Kallað eftir tilnefningum

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til íslensku myndlistarverðlaunanna 2021! Hvetjum alla til þátttöku og senda inn tilnefningar í tveimur flokkum: Myndlistarmaður ársins og Hvatningarverðlaun ársins. Hægt er að nálgast eyðublaðið hér.

Verðlaunin verða veitt í fjórða skipti í febrúar 2021 og hægt er að tilnefna til miðnættis 7. janúar. Myndlistarráð stendur að verðlaununum sem hafa þann tilgang að vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar á Íslandi. Verðlaununum er ætlað að stuðla að kynningu á íslenskum myndlistarmönnum og styðja við myndsköpun þeirra.