Katie Paterson: Reykelsis athöfn í Nýló

Að Brenna, Skógur, Eldur

Sem hluti af World Weather Network framtakinu verður flutt reykelsis athöfn eftir skosku listakonuna Katie Paterson í Nýlistasafninu laugardaginn 3. september kl. 15:00. 

Reykelsis athöfnin „Að brenna, skógur, eldur” samanstendur af ilmi úr fyrsta skóginum á jörðinni, fyrir 385 milljónum ára og ilmi úr síðasta skóginum á tímum loftlagsvárinnar. Þessum ilmum hefur verið umbreytt í reykelsi og var kveikt í þeim á mismunandi vettvöngum í Helsinki í september í fyrra. 

Nú verður reykelsis athöfnin flutt víðsvegar um heiminn, sem samstarfaaðilar munu skipuleggja í samtali við  IHME Helsinki sem bauð Katie til þátttöku í World Weather Network.  

Viðburðurinn er skipulagður af Kynningarmiðstöð Íslenskrar Myndlistar í samstarfi við Nýlistasafnið.  

Til að lesa meira um verkið Að Brenna, Skógur, Eldur, farið á heimasíðu Katie:

https://katiepaterson.org/artwork/to-burn-forest-fire/

______________

Alls standa 27 lista- og menningarstofnanir víðsvegar um heiminn að framtakinu og saman mynda hóp „veðurstöðva“ sem staðsettar eru í höfum, eyðimörkum, fjöllum, landbúnaðarhéruðum, regnskógum, veðurathugunarstöðum, vitum og borgum heims. 

Frá og með 21. júní 2022 mun listafólk og rithöfundar senda frá sér „veðurfréttir“ í formi hugleiðinga, sagna, mynda og þankabrota um veðurfar á heimaslóðum þeirra og okkar sameiginlega loftslag, sem saman munu svo skapa heilan klasa radda og skoðana á nýjum, alþjóðlegum vettvangi. 


Einar Falur Ingólfsson er þátttakandi Kynningarmiðstöðvar í verkefninu og sem gestalistamaður í Vatnasafni í Stykkishólmi síðan í maí hefur hann meðal annars skrásett myndræna veðurdagbók og mun halda því áfram í heilt ár.  Dagbókina birtir Einar Falur fyrst vikulega á Instagram, @DailyWeatherReports.