Frestur til 30. október 2020
Kæru fulltrúar,
Frestur til að sækja um í vinnustofudvöl í Clermont Ferrand í Frakklandi hefur verið framlengdur um viku. Vinnustofudvölin er afrakstur samstarfs milli Nýló og Artiste en residence í Clermont Ferrand, með góðum stuðningi frá Franska sendiráðinu á Íslandi og Alliance Francaise í Reykjavík. Fulltrúar Nýló sem hafa borgað ársgjald 2020 er frjálst að sækja um vinnustofudvöl í apríl 2021 í Artiste en Residence í Clermont Ferrand (http://www.artistesenresidence.fr), inniflalið er gistiaðstaða, aðgangur að vinnustofu og 1.000€ styrk fyrir uppihaldi. Listamaðurinn verður að koma sér á staðinn á eign vegum en Nýló aðstoðar við að sækja um ferðastyrki ef þess er þörf. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri og við hvetjum sem flest ykkar til að sækja um.
Dvölin er eins konar „skipti-prógram“, Nýló sendir fulltrúa til Frakklands í mánuð í senn, og á móti tökum við á móti listamanni frá Frakklandi í mánaðardvöl hjá SÍM. Í september í ár dvaldi franskur listamaður, Naomi Maury, í vinnustofu SÍM á Seljavegi. Naomi kom til Íslands í byrjun mánaðarins og byrjaði eftir sóttkví að kynnast íslenskri myndlistarsenu, hitti listamenn, sýningarstjóra og vann að eigin verkum. Hún fór aftur til Frakklands í lok september.
Nánar um umsóknarferlið:
- Umsóknin á að vera skrifuð á ensku. (Ath að ekki er nauðsynlegt að vera frönskumælandi, til sækja um eða dvelja í resídensíunni.)
Með umsókninni skal fylgja ferilskrá ásamt stuttri yfirlýsingu listamanns (e. artist statement, hámark 500 orð). - Að auki skulu fylgja með tíu til 20 myndir af fyrri verkum. Fyrir tímatengd verk, myndbands eða hljóðverk skal setja inn hlekk sem leiðir beint á Vimeo, Youtube eða álíka veitur.
- Vinsamlegast sendið ekki myndbönd eða hljóðverk beint í tölvupósti, aðeins hlekki.
- Senda skal umsóknir og allt efni sem þeim viðkemur, utan tímatengdra verka, í einu samhangandi PDF skjali. Skjölin mega ekki vera stærri en 10 MB.
- Umsóknir sem ekki fara eftir umbeðnum kröfum og leiðbeiningum eða í vantar einhver gögn verða ekki teknar til greina.
Inntökunefnd á vegum Artiste en Residence í Clermont-Ferrand velur úr umsóknum.
Umsóknir berist fyrir miðnætti, 30. október 2020 á netfangið nylo(hjá)nylo.is merktar „Clermont-Ferrand_2021“. Ekki verður tekið við útprentuðum umsóknum. Fyrirspurnir berist á sama netfang.
Einnig er velkomið að senda fyrirspurnir á Bruno Silva hjá Artites En Residence: bruno.silva(hjá)artistesenresidence.fr