Out There / nýr þáttur sýningarumfjöllun ásamt sýningstjóra Daríu Sól og safnstjóra Gerðarsafns Brynju Sveinsdóttir.

Frida Orupabo, Leda and the swan, 2021. Samklipp á álplötu. 94 x 67 cm. Ljósmynd Galleri Nordenhake.

Nýji þátturinn fjallar um sýninguna Að rekja brot í samtali með sýningstjóra sýningarinnar Daríu Sól Andrews og safnstjóra Gerðarsafns Brynju Sveinsdóttir. Það er hægt að hlusta á þáttinn bæði hér á heimasíðunni okkar og á Spotify.

Í þættinum er farið víða um völl. Þar ræddu Þórhildur Tinna og Becky Forsythe bæði einstök verk frá sýningunni og svo grundvallar hugtök sem sýningin er byggð á.

Ljósmynd frá opnun sýningarinnar 2 febrúar með listamönnum og sýningastjóranum. Í bakgrunni sjást verk eftir Frida Orupabo.
Frá vinstri til hægri: Abdullah Qureshi, Daría Sól Andrews, Sasha Huber og Kathy Clark.

Að rekja brot samanstendur af verkum eftir Kathy Clark, Sasha Huber , Hugo Llanes, Frida Orupabo, Inuuteq Storch og Abdullah Qureshi. Í verkum listamannanna er tek­ist á við ný­lend­u­stefn­u og kyn­þátt­a­for­dóm­a.  Sýningin stendur til 21. maí næstkomandi í Gerðarsafni.