Myndlistarmaðurinn Sigurður Guðjónsson er fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2021. Sigurður Guðjónsson er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann sýndi fyrst um aldamótin síðustu í listamannareknum rýmum í Reykjavík, en dökk og ágeng vídeóverk hans vöktu strax athygli.
Sigurður á yfir tuttugu einkasýningar að baki víðs vegar um heiminn, en hann hlaut auk þess Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir verk sitt Innljós í kapellu og líkhúsi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði á vegum Listasafns ASÍ. Hans nýjasta verk ber titilinn Enigma og verður verkið meðal annars til sýnis í Kennedy Center í Washington, Adler Planeterium í Chicago og Carnegie Hall í New York á umfangsmikilli sýningarvegferð sinni um heiminn sem nú stendur yfir. Sigurður notar tímamiðil (vídeó) í verkum sínum sem fangar áhorfandann gegnum ryþma og endurtekningu og tengir mynd og hljóð á þann hátt að þau virðast víkka skynsviðið og vekja nýjar kenndir. Á síðustu árum hefur hann líka unnið í samstarfi við tónskáld og þannig búið til verk sem sameina vídeó, rafhljóð og lifandi flutning. Hann er sífellt að víkka út sköpunarsviðið en verk hans bera sterk persónuleg einkenni og ná að skapa undarlega nánd sem aftur styrkir enn frekar skynhrifin.
Sigurður Guðjónsson er fæddur árið 1975 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Billedskolen í Kaupmannahöfn 1998-1999, Listaháskóla Íslands 2000 -2003 BA og Akademie Der Bildenden Kunste í Vínarborg 2004.
Það er mikill heiður fyrir þann íslenska myndlistarmann sem valinn er til þátttöku á tvíæringnum hverju sinni, en þátttaka Íslands í Feneyjatvíæringnum hófst árið 1960. Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis Íslands.
Val á fulltrúa Íslendinga á Feneyjatvíæringinn 2021 var í höndum fagráðs Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, en fagráðið skipa: Helga Björg Kjerúlf, framkvæmdarstjóri Kynningarmiðstöðvarinnar; Ásdís Spanó, myndlistarmaður og Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar – menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Gestir nefndarinnar voru Heiðar Kári Rannversson, sýningarstjóri og Sigurður Árni Sigurðsson, myndlistarmaður.
Í rökstuðningi fagráðs segir: „með vali Sigurðar teflir Ísland fram listamanni sem unnið hefur að áhrifamiklum innsetningum á óvenjulegum sýningarsvæðum og byggt upp afar sterka röð sýninga sem vakið hafa verðskuldaða athygli í heimi samtímalistarinnar“