Exhibition opening: Rím at 15:00-17:00

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir sýnir ný verk sem tengjast almanaksfræðum og aldagömlum tímamælingum. Hún teflir saman náttúrulegum og manngerðum kerfum með andstæðum í efnum og aðferðum.

Verkin Sumardagurinn fyrsti, Fyrsti vetrardagur, Konudagur, og Bóndadagur tilheyra dagbókarseríu (journal series) og eru skrásetningar dagsljósstunda ákveðinna dagsetninga með blaðgulli.

Sólúr (65. breiddargráða norður) er einnig hluti af röð verka sem hvert og eitt er gert fyrir mismunandi breiddargráður og staði á norðurhveli jarðar. Skúlptúrinn er afsteypa af þrjú þúsund ára gamalli rostungstönn af sér íslenskum, útdauðum rostungastofni, notuð er sem grunnur fyrir hreyfanlega sólarklukku.

Sýningin opnar að sjáfsögðu á sumardaginn fyrsta (25. apríl) kl. 15:00 og stendur til 25. maí.

Artist: Anna Júlía Friðbjörnsdóttir

Date:

25.04.2024

Location:

Gallery Kverk

Garðastræti 35, 101 Reykjavík, Iceland

Tags:

City CenterExhibition

Opening hours:

MondayClosed
TuesdayClosed
WednesdayClosed
ThursdayClosed
FridayClosed
Saturday12:00 - 17:00
SundayClosed

Follow us on Facebook – Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Islensku myndlistarverdlaunin 2023