Auglýsingahlé Billboard: opin samkeppni

13.09.2023
Hrafnkell Sigurðsson, Resolution

Billboard efnir til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur. Dagana 1.–3. janúar 2024 verður Auglýsingahlé á 550 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir myndlistarmann sem valinn verður úr hópi umsækjenda.

Listamaðurinn fær 1.000.000 kr greiddar fyrir verkið sem verður að sýningartíma loknum gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu Auglýsingahléi Billboard.

Verkið verður sýnt á um 550 skjáum um alla Reykjavíkurborg, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum (6x4m) við götur. Ekki er hægt að sýna hreyfimyndir eða myndskeið en mögulegt er að skipta um mynd á 8 sek. fresti.

Umsækjendur eru beðnir um að senda inn tillögur fyrir kl. 16:00 þann 30. september 2023. Umsóknin skal innihalda stuttan texta um fyrirhugað verk ásamt 1–5 myndum af verkinu (útskýringarmyndir, skissur, ljósmyndir o.s.frv.). Lokaútfærsla verksins verður síðan ákveðin í samstarfi við Y gallery.

Dómnefnd skipuð fulltrúa frá Y gallery, Listasafni Reykjavíkur, Billboard og SÍM fer yfir innsendar tillögur og tilkynnir um val sitt stuttu eftir að umsóknarfresti lýkur.

Í upphafi þessa árs varð Sigurður Ámundason fyrir valinu með verk sitt Rétthermi. Árið 2022 sýndi Hrafnkell Sigurðsson verkið Upplausn en hann hlaut verðlaun Myndlistarráðs sem Myndlistarmaður ársins fyrir sýninguna.

Umsóknareyðublað

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur