Auglýst eftir útgáfum frá 2022

02.11.2022
Deiglumór Íslensku myndlistarverðlaunin 2022

Myndlistarráð veitir árlega Íslensku myndlistarverðlaunin og veitir á sama tíma viðurkenningu fyrir útgefið efni, áhugaverðustu samsýninguna og áhugaverðasta endurlitið. Markmið verðlaunanna er að heiðra íslenska myndlistarmenn, eða myndlistamenn sem búsettir eru á Íslandi, og vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar.

Af því tilefni kallar myndlistarráð eftir útgáfum frá árinu 2022 sem tengjast myndlist. Auglýst er eftir prentuðum eða stafrænum útgáfum frá stofnunum, einstaklingum eða bókaútgáfum.

Viðurkenningin er veitt þeim sem staðið hefur að framlagi sem talið er hafa mikilvægt gildi fyrir kynningu og rannsóknir á íslenskri myndlist.

Skilafrestur er 1. desember.

Hægt er að senda eintök á skrifstofu myndlistarráðs:

Myndlistarráð

Gimli, Lækjagata 3

101 Reykjavík

Stafrænt efni má senda á: info@myndlistarsjodur.is

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur