Myndlistarmenn geta sótt um ferðastyrki til starfa og sýningahalds erlendis vegna tímabilsins febrúar – maí 2024. Umsóknarfrestur er 1. febrúar.
Ferðastyrkir eru fyrir kostnaði við ferðir og gistingu tengda sýningarhaldi, vinnustofudvölum og verkefnum erlendis. Styrkupphæð er 75.000 kr.
Næstu umsóknarfrestur á árinu er:
1. júní fyrir ferðalög í kringum júní – september
1. október fyrir ferðalög í kringum október - janúar