Horft til framtíðar- ráðsstefna 16. mars

08.03.2023
Horft til framtíðar

Horft til framtíðar er ráðstefna þar sem velt verður upp hugmyndum, draumórum og væntingum okkar myndlist framtíðarinnar. Í kjölfar þess að myndlistarstefna stjórnvalda er í ferli og mun líta dagsins ljós á næstu vikum eða mánuðum var ákveðið að skapa vettvang þar sem við veltum fyrir okkur myndlistarumhverfinu frá ýmsum sjónarhornum og til lengri tíma. Við munum spyrja spurninga, minna okkur á það sem skiptir máli, hvað við getum gert til að efla myndlistina og vonandi sjá hluti í nýju ljósi.

Frummælandi ráðstefnunnar er Pari Stave, forstöðukona Skaftfells. Pari flutti frá New York til Seyðisfjarðar árið2022 en hún starfaði áður sem sýningarstjóri hjá Metropolitan safninu í New York. Aðrir ræðumenn verða Bjarki Bragason, myndlistarmaður og deildarforseti Myndlistardeildar LHÍ, Veronika Balcerak, myndlistarmaður og nemi í útskriftarárgangi bakkalárs náms í myndlist við LHÍ, Hlynur Hallsson, myndlistarmaður og safnstjóri Listasafnsins á Akureyri og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, myndlistarmaður og sýningarstjóri.

Að framsögum loknum mun Ingibjörg Jóhannesdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands stýra pallborðsumræðum.Ráðstefnustjóri er Dorothée Kirch, sjálfstætt starfandi verkefnastjóri.

Að fundi loknum bjóðum við ykkur að þiggja léttar veitingar.

Ráðstefnan fer fram í Safnahúsinu, Hverfisgötu 15 milli kl. 13-17

Öll velkomin!

Ráðstefnan er skipulögð af Myndlistamiðstöð og Menningarmálaráðuneytinu.

Horft til framtidar vimeo stilla

Upptaka frá ráðstefnunni Horft til framtíðar 16. mars 2023

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur