Íslenski skálinn á aðalsvæði tvíæringsins

05.11.2020
The Icelandic Pavilion to be located in the Arsenale

Ákveðið hefur verið að færa sýningarsvæði Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022 á Arsenale, aðalsvæði hátíðarinnar, og hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti tryggt fjármagn til þess. Þá mun Íslandsstofa leggja fjármagn til kynningar á þátttöku Íslands í samvinnu við Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. Í kringum sexhundruð þúsund gestir heimsækja að jafnaði það svæði sem þýðir að gestafjöldi í íslenska skálanum geti nær tuttugufaldast frá því sem verið hefur síðastliðin ár.

Það er gleðilegt að fleiri fái notið framlags Íslands á næsta tvíæringi. Þátttaka í Feneyjartvíæringnum hefur reynst mikilvæg lyftistöng fyrir íslenska myndlistarmenn og ég er þess fullviss að svo verður áfram

Lilja Dögg Alfreðsdóttir

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, sem hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd ráðuneytisins, hefur undirritað samning við skrifstofu Feneyjatvíæringsins um nýtt húsnæði fyrir íslenska skálann á Arsenale, aðalsvæði sýningarinnar.

Feneyjartvíæringurinn er alþjóðleg myndlistarsýning helguð samtímalist og einn elsti og virtasti listviðburður heims. Til hans var stofnað árið 1895 en Ísland hefur tekið þátt í tvíæringnum frá árinu 1960.

Til margra ára, eða allt frá 1984, var íslenska sýningin í finnska skálanum sem var leigður af Finnum, en sá skáli er staðsettur inni í hinum svonefndu Görðum tvíæringsins þar sem margar þjóðir hafa byggt eigin skála. Frá því að KÍM tók að sér framkvæmd verkefnisins árið 2007 hefur íslenski skálinn hins vegar verið staðsettur í húsnæði víðs vegar um borgina. Þeir Steingrímur Eyfjörð (2007) og Ragnar Kjartansson (2009) sýndu í Palazzo Michiel dal Brusa við Canal Grande, Libia Castro og Ólafur Ólafsson (2011) og Katrín Sigurðardóttir (2013) sýndu í gömlu þvottahúsi Palazzo Zenobio í Collegio Armeno Moorat-Raphael í Dorsoduro. Christoph Büchel sýndi í kirkjunni Santa Maria della Misericordia (2015) og Egill Sæbjörnsson (2017) og Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter sýndu bæði sínar innsetningar á eyjunni Giudecca.

Ísland á að baki farsæla sögu á Feneyjatvíæringnum og í gegnum tíðina hafa margir okkar frambærilegustu listamanna verið fulltrúar þar. Nú fáum við tækifæri til að vera staðsett inni í kjarna tvíæringsins og fleiri gestir geta sótt okkur heim. Það er skiptir okkur gríðarlegu máli

Auður Jörundsdóttir

Lightroom by Sigurður Guðjónsson

Lightroom eftir Sigurð Guðjónsson. Birt með leyfi listamannsins og Berg Contemporary.

Feneyjatvíæringnum sem fara átti fram árið 2021 hefur verið frestað til ársins 2022 vegna áhrifa COVID-19. Fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022 verður Sigurður Guðjónsson.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur