Sem hluti af World Weather
Network framtakinu verður flutt reykelsis athöfn eftir skosku listakonuna
Katie Paterson í Nýlistasafninu laugardaginn 3. september kl. 15:00.
Reykelsis
athöfnin „Að brenna, skógur, eldur” samanstendur af ilmi úr fyrsta skóginum á jörðinni,
fyrir 385 milljónum ára og ilmi úr síðasta skóginum á tímum loftlagsvárinnar. Þessum
ilmum hefur verið umbreytt í reykelsi og var kveikt í þeim á mismunandi vettvöngum
í Helsinki í september í fyrra.
Nú verður reykelsis athöfnin flutt víðsvegar um heiminn, sem
samstarfaaðilar munu skipuleggja í samtali við IHME Helsinki
sem bauð Katie til þátttöku í World Weather Network.
Viðburðurinn
er skipulagður af Kynningarmiðstöð Íslenskrar Myndlistar í samstarfi við Nýlistasafnið.
Til að lesa
meira um verkið Að Brenna, Skógur, Eldur, farið á heimasíðu Katie:
https://katiepaterson.org/artwork/to-burn-forest-fire/
Alls standa27lista- og menningarstofnanir víðsvegar um heiminn að framtakinu
og saman mynda hóp „veðurstöðva“ sem staðsettar eru í höfum, eyðimörkum, fjöllum,
landbúnaðarhéruðum, regnskógum, veðurathugunarstöðum, vitum og borgum heims.
Frá og með
21. júní 2022 mun listafólk og rithöfundar senda frá sér „veðurfréttir“ í formi
hugleiðinga, sagna, mynda og þankabrota um veðurfar á heimaslóðum þeirra og okkar
sameiginlega loftslag, sem saman munu svo skapa heilan klasa radda og skoðana á
nýjum, alþjóðlegum vettvangi.
Einar Falur Ingólfsson er þátttakandi Kynningarmiðstöðvar í
verkefninu og sem gestalistamaður í Vatnasafni í Stykkishólmi síðan í maí hefur
hann meðal annars skrásett myndræna veðurdagbók og mun halda því áfram í heilt ár.
Dagbókina birtir Einar Falur fyrst vikulega á Instagram, @DailyWeatherReports.