Opnað fyrir tillögur

13.12.2022
Islensku myndlistarverdlaunin 2023 merki

Íslensku myndlistarverðlaunin verða veitt í sjötta skipti í mars 2023. Eins og áður óskar myndlistarráð eftir tillögum. Veitt verða tvenn verðlaun: Myndlistarmaður ársins og Hvatningarverðlaun ársins.

Sendu inn tillögu til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2023. Frestur til að tilnefna rennur út á á miðnætti mánudaginn 9. Janúar.

Myndlistarráð stendur að Íslensku myndlistarverðlaununum og eru þau veitt í nafni ráðsins. Markmið verðlaunanna er að heiðra íslenska myndlistarmenn eða myndlistarmenn með búsetu á Íslandi, hvetja til nýrrar listsköpunar og efla kynningu íslenskrar myndlistar, innan lands sem utan.

Verðlaunin Myndlistarmaður ársins eru veitt íslenskum myndlistarmanni eða myndlistarmanni með búsetu á Íslandi sem þykir hafa skarað framúr með nýlegum verkum og sýningu á Íslandi á síðastliðnu ári, 2022. Verðlaunafé er 1 milljón krónur.

Hvatningarverðlaun, 500 þúsund krónur, verða veitt starfandi myndlistarmanni sem nýlega hefur komið fram á sjónarsviðið og vakið athygli með verkum sínum.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur