Seinni úthlutun úr myndlistarsjóði 2023

28.09.2023
Úthlutun MLS seinni 2023 Þór Vigfússon. Birt með leyfi i8

Seinni úthlutun myndlistarsjóðs á þessu ári er lokið. Í þessari lotu úthlutar myndlistarráð 26,1 milljón til 45 verkefna víðsvegar á landinu sem og erlendis. Sjóðnum bárust að þessu sinni 166 umsóknir og sótt var um styrki fyrir rúmlega 195 milljónum króna.

Úthlutað var til 31 sýningarverkefna, fyrir alls 16,5 milljónir króna. Þá hlutu 7 verkefni undirbúningsstyrk upp á alls 5,5 milljónir króna og eins hlutu 7 verkefni styrk upp á alls 3,7 milljónir króna í útgáfu-, rannsóknar- og aðrir styrkir.

Listi yfir styrkþega er aðgengilegur hér

Fyrsta úthlutun sjóðsins var árið 2013 og frá upphafi hefur sjóðnum borist 3151 umsóknir. Síðustu tíu ár hefur sjóðurinn úthlutað 565 milljónum króna.

Í matsnefndum sátu: Anna Jóhannsdóttir, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, Katrín Elvarsdóttir, Hlynur Helgason, Ynda Eldborg og Unnar Örn.

Næsti umsóknarfrestur í myndlistarsjóð er mánudaginn 12. febrúar kl. 16:00.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur