Seinni úthlutun úr myndlistarsjóði 2016

07.12.2016
Anna Líndal - myndlistarsjóður 2016

Myndlistarráð úthlutar 13.050.000 krónum í styrki til 41 verkefnis í seinni úthlutun myndlistarsjóðs á árinu. Sjóðnum bárust 128 umsóknir og var sótt um alls 97,5 milljónir.

Stóru verkefnastyrkirnir að þessu sinni eru sautján talsins og fara þangað 6,65 m.kr. en flokkurinn er stærsti flokkur sjóðsins líkt og í fyrri úthlutunum; þar af eru fimm einkasýningar bæði hérlendis og erlendis og ellefu samsýningar. Að auki hljóta tíu myndlistarmenn styrk í flokki minni sýningarverkefna að heildarupphæð 2,5 m.kr., átta styrkir að heildarupphæð 2,6 m.kr. fara til útgáfu- og rannsókna, 1,3 m.kr er veitt til undirbúnings verkefna og annarra styrkja.

Hlutverk Myndlistarsjóðs er að efla íslenska myndlist með fjárhagslegum stuðningi og stuðla þannig að framgangi listsköpunar, kynningu og aukinni þekkingu á íslenskri myndlist. Myndlistarsjóður heyrir undir myndlistarráð og starfar samkvæmt myndlistarlögum og eftir reglum sem menntamálaráðherra setur. Sérskipaðar matsnefndir meta umsóknir og gera tillögu að úthlutun.

Listi yfir styrkþega er aðgengilegur hér.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur