Sigurður Guðjónsson er Myndlistarmaður ársins 2018

22.02.2018
Blue box

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, afhenti Íslensku myndlistarverðlaunin í fyrsta skipti í Listasafni Reykjavíkur fimmtudaginn 22. febrúar. Sigurður Guðjónsson var valinn Myndlistarmaður ársins fyrir sýninguna Innljós, í kapellu og líkhúsi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði á vegum Listasafns ASÍ.

Dómnefndin tilnefnir Sigurð Guðjónsson Myndlistarmann ársins fyrir ákaflega sterkar og heilsteyptar innsetningar á óvenjulegu sýningarsvæði í St. Jósefsspítala. Sýningin er sjónræn upplifun þar sem áhorfandinn verður meðvitaður um eigin tilvist og líkama. Verkin Fuser 2017, Scanner 2017 og Mirror Projector 2017 eru dularfull og voldug í senn og kalla fram óræða skynjun sem þó er full af vísunum í vélræna virkni.

Eftirfarandi myndlistarmenn voru tilnefndir sem Myndlistarmaður ársins 2018:

  • Anna Júlía Friðbjörnsdóttir fyrir sýninguna Erindi í Hafnarborg
  • Egill Sæbjörnsson fyrir sýninguna Ùgh & Bõögâr Jewellery í i8 Gallery
  • Hulda Vilhjálmsdóttir fyrir sýninguna Valbrá í Kling og Bang

Auður Lóa Guðnadóttir hlaut Hvatningarverðlaun ársins.

Auður Lóa útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2015 og hefur síðan þá verið virk í sýningarhaldi og látið til sín taka innan íslensks myndlistarsamfélags.

Dómnefndin telur að Auður Lóa Guðnadóttir sé vel að Hvatningarverðlaunum ársins komin. Hún hefur sýnt að hún er óhrædd við að leita efniviðar á óvæntum stöðum og túlka viðfangsefni sín af innsæi og frumleika. Öll vinna hennar og framsetning leiftrar af hlýju og fyrirheitum um áframhaldandi hugmyndaflug og óvenjulega sýn á lífið. Því hvetur dómnefndin Auði Lóu til að halda áfram að skapa á sinn einstaka hátt.

Í dómnefnd Íslensku myndlistarverðlaunanna sátu:

  • Margrét Kristín Sigurðardóttir, formaður myndlistarráðs og formaður dómnefndar
  • Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir, myndlistarmaður (SÍM)
  • Magnús Gestsson, listfræðingur (Listfræðafélagið)
  • Margrét Elísabet Ólafsdóttir, listfræðingur (fulltrúi safnstjóra íslenskra safna)
  • Sigrún Inga Hrólfsdóttir, deildarforseti myndlistardeildar (LHÍ)

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur