Skrifum saman – kallað eftir tillögum

11.10.2022
Skrifum saman – Myndlist á Íslandi

Myndlist á Íslandi leitar að röddum, textahöfundum, rithöfundum, listamönnum og gagnrýnum hugsuðum til að skrifa í blaðið.

Við köllum eftir skriflegu efni sem snertir á samtímalist á Íslandi, í opnu samtali og tengingu við samtímahugmyndir og -umræður, bæði hér á landi og í alþjóðlegu samhengi. Þá er hluti af útgáfustefnu blaðsins að vera vettvangur sem tekur við innsendum tillögum og hugmyndum yfir allt árið.

Það er okkur ánægja að skapa slíkt rými og vinna með textahöfundum í að þróa eigin hugmyndir frekar. Þannig verður þetta vettvangur fyrir samvinnu, þar sem textahöfundar mega búast við gagnkvæmu samtali og ferli. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að velja úr innsendum tillögum sem og að hafa áhrif á þróun þeirra og vinnslu.

Tillögur að efni fyrir næstu útgáfu þurfa að berast til okkar fyrir 31. október næstkomandi en næsta blað verður gefið út snemma árs 2023. Tillögur að efni skulu ekki vera lengri en 200 orð og skýrt skal koma fram hvers eðlis efnið muni vera. Greitt er fyrir allt efni sem valið er í blaðið.

Endilega sendið okkur tillögur eða spurningar á netfangið myndlistaislandi@gmail.com

Myndlist á Íslandi er tímarit um íslenska myndlist. Markmiðið er að skapa öfluga miðju fyrir myndlistarumfjöllun og vettvang fyrir líflega umræðu um myndlist hér á landi. Tímaritið er samstarfsverkefni Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM), Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar (KÍM), myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Listfræðafélags Íslands og Myndlistarráðs. Fyrsta útgáfa blaðsins kom út í mars 2021.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur